Færsluflokkur: Menning og listir
31.10.2011 | 11:40
Selt: Balle fermingarkverið
Lærdómsbók í evangelísk-kristilegum Trúarbrøgdum handa Unglingum eftir Nicolai Edinger Balle (1744-1816). Meðal efnis er Advaran til kennendanna og sá litli Lúthers Katekismus.
Þetta fermingarkver kom fyrst út á Íslandi í Leirárprenti 1796 en það eintak sem hér er boðið til sölu er 22. útgáfa, prentuð í Reykjavík 1862.
Höfundurinn var Sjálandsbiskup 1783-1808 og á dönsku heitir bókin Lærebog i den evangelisk-christelige religion. Hannes Finnsson og Einar Guðmundsson þýddu.
Vel með farið eintak, verð 18000 kr., https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=171140
Menning og listir | Breytt 9.11.2011 kl. 10:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.10.2011 | 02:29
Ævintýri og örfá ljóð um kynlíf
Kanill er heiti á nýrri ljóðabók eftir skáldkonuna Sigríði Jónsdóttur í Arnarholti. Útgefandi er Bókaútgáfan Sæmundur en undirtitill bókarinnar er; Ævintýri og örfá ljóð um kynlíf. Skáldið skýrir nafn bókarinnar í fyrsta ljóðinu:
Kanillinn er kynlíf
sykurinn er ástin
grauturinn og mjólkin eru lífið
bæði þykkt og þunnt.
Síðar fjallar hún um sýn ungrar konu á þau bönd sem löngu úrelt hugsun leggur á kvenlegar hvatir:
En skírlífisbrækurnar runnu niður um lærin
og þvældust um fótleggina.Ég er kjaftfor og framhleypin.
Mig langar ekki að vera hrein mey.
Mig langar að sofa hjá.
Ég vil finna hvernig það er
hafa gert það
og geta gert það aftur.Ég braust um í haftinu og þetta óþjála efni
fordómar og heimska
sem tilheyrðu öðrum tíma og öðruvísi fólki
hertist að ökklunum.
Bókina má kaupa hér á aðeins 2290 kr. https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=171138
25.10.2011 | 11:01
Íslensk endurreisn I og II
Íslensk endurreisn I og II eftir Vilhjálm Þorstein Gíslason.
Undirtitill fyrra bindisins sem kom út 1923 er: Tímamótin í menningu 18. og 19. aldarinnar og fjallar bókin um m.a. bókmennta- og menningarsögu 18. og 19. aldar. 423 síður í fallegu bandi.
Síðara bindið er ævisaga Eggerts Ólafssonar og kom út 1926. 440 síður, myndir og ritsýni.
Höfundur var útvarpsstjóri og afkastamikill rithöfundur, fæddur í Reykjavík 1897 og lést 1982.
Vel með farin eintök og fást saman fyrir 29.000 kr. https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=171137
24.10.2011 | 07:20
Ný ljósmyndabók um Selfoss
Út er komin bókin Selfoss eftir Gunnar Marel Hinriksson sagnfræðing og skjalavörð. Bókaforlagið Sæmundur á Selfossi gefur út. Selfoss sýnir svarthvítar ljósmyndir höfundar af samnefndu þorpi í Flóanum og hverri mynd fylgir texti sem tengist Selfossi á einn eða annan hátt. Textarnir eru valdir úr ýmsum heimildum, óútgefinni jarðabók frá 17. öld, bókum, dagblöðum, bloggsíðum, dægurlögum.
Samhengi mynda og texta gefur hvoru um sig nýja merkingu - og þá breytir Selfoss um svip.
Páll Sigurðsson skógfræðingur skrifar formála bókarinnar. Bókina má kaupa hér á aðeins 3990 kr; https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=171136
23.10.2011 | 16:36
Kynblandna stúlkan og Valdimar munkur
Hér eru saman í einni bók tveir vinsælir amerískir reifarar frá fyrstu árum 20. aldar.
Annarsvegar Valdimar munkur eftir Kobb sem hefur verið endurprentuð nokkrum sinnum á 20. öld og hinsvegar hin djarfa bók Armands um Kynblöndnu stúlkuna.
Bækur þessar voru prentaðar í Reykjavík 1905 og 1906 og hafa hér verið bundnar saman í eitt í heimabandi sem er orðið lúið og velkt. Bókin (bæði ritin) er blaðheil og skemmtilegt söfnunareintak sem fæst á aðeins 3300 kr, https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=166841
Menning og listir | Breytt 28.10.2011 kl. 12:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.9.2011 | 22:11
Eftirmæli 18. aldar á 110 þúsund
Vorum að nýju fá í sölu Eftirmæli Átjándu Aldar eftir Magnús Stephensen, prentað í Leirárgörðum við Leirá 1806. Verð nú er aðeins 110 þúsund.
Á titilblaði segir:
Eptirmæli Atjándu Aldar eptir Krists híngadburd, frá Ey-konunni Islandi / I þessarar nafni framvørpud af Magnúsi Stephensen, K. H. virkilegu Jústitsrádi og Justitiario í þeim konúngl. íslendska Lands-yfirretti, Tilsjónar-manni ens konúngl. íslendska Lands-uppfrædíngar Fjelags, Medlimi þeirra konúngl. norsku Vísinda og íslendska Lærdóms-lista Fjelaga, og corresponderandi Medlimi ens scandinaviska Literatur Fjelags.
Í bók Böðvars Kvarans um Auðlegð Íslendinga segir hann: "Ýmsir telja að Eftirmælin séu bezta og merkasta verk Magnúsar Stephensen. Er þar að finna mikinn fróðleik um margvísleg efni, innlend og erlend, enda reynt að draga saman hið helzta og þannig skapa yfirsýn yfir 18. öldina, meta gildi hennar í ljósi árferðis og atvinnuhátta, en einnig annara umtalsverðra atburða". (bls.124)
Mjög vel með farin bók, heilt og gott eintak í upprunalegu bandi.
Verð: 110.000
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2011 | 20:49
Við erum farin að tísta!
23.8.2011 | 20:24
Allt á floti er ágætis skvísubók
Öll þekkjum við þegar allt virðist ganga á afturfótunum. Við höfum mikið að gera. Eitthvað óvænt kemur upp. Bíllinn bilar eða það kemur upp leki í húsinu. Við megum alls ekki vera að því að sinna þessu, en við verðum.
Þetta gerist hjá öllum. Konum og körlum. Frægum og ríkum.
Stella Friberg í bókinni, Allt á floti eftir Kasju Ingemarsson, á allt sem ein kona getur óskað sé. Hún er frægur og ríkur metsöluhöfundur og hún á kærasta sem er flottur og frægur eins og hún. Stella er líka mjög fallega og alltaf mjög smart.
Í upphafi bókarinnar er Stella nýflutt í draumíbúðina en einn daginn fer að leka í baðherberginu og það þarf að láta laga lekann. Þetta setur allt hennar líf úr skorðum. Hún er undir mikilli pressu, hún þarf líka að ljúka tíundu bókinni í bókaflokknum um Francisku Falke. Lagfæringarnar á íbúðinni trufla hana mikið við skrifin, en forlagið vill fá handritið á réttum tíma. Klukkan tifar...
Þetta er skemmtilega skrifuð skvísubók og flestar konur ættu að geta lifað sig inní vandræði Stellu. Stella Friberg virðist þó ekki vera mjög skemmtileg. Hún virkar nokkuð hrokafull á mig. En hún hefur líka mikla minnimáttarkennd gagnvart öðrum rithöfundum. Einkum þeim sem skrifa fagurbókmenntir. Það er kannski skýringin á hrokanum. Samskipti hennar við foreldrana eru líka stirð. Svo, þrátt fyrir að vera falleg, fræg og rík, þá er líf hennar ekki endilega öfundsvert. Hún er mannleg. Við getum fundið til með henni og það viljum við gera þegar við lesum bækur. Finna til og gleðjast með þeim sem við lesum um. Við gerum það þegar við lesum Allt á floti.
-eg
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.7.2011 | 20:39
Brotin egg er skemmtileg og góð lesning
Á sumrin eru krimmarnir vilsælir en það er líka gaman að lesa eitthvað annað. Snemma á þessu sumri las ég bókina Brotin egg eftir Jim Powell. Og ég mæli eindregið með henni.
Í bókinni segir frá byltingarsinnanum Felix Zhukovski sem býr í Frakklandi og hefur hann helgað líf sitt kommúnismanum. Líf hans hefur verið í nokkuð föstum skorðum, en dag einn verður ýmislegt til þess að hann verður að enduskoða afstöðu sína til lífsins. Hann hefur leit að bróður sínum og móður sem hann hefur ekki séð síðan í Póllandi fyrir stríð. Leit þessi verður til þess að að hann sér líf sitt í nýju ljósi, sem og sögu 20. aldarinnar. Saga Felix er einkar hjartnæm, en húmorinn er aldrei langt undan. Skemmtileg og góð lesning.
-eg
16.7.2011 | 18:45
Þá var öldin önnur eftir Einar Braga
Þá var öldin önnur er þriggja binda verk eftir Einar Braga.
Hér er að finna skemmtilegan samtíning þessa austfirska höfundar um atburði og sögur frá liðinni tíð.
Vel með farið eintak (án kápu) á aðeins 3900 krónur.
https://secure.eshop.is/bokakaffid/VaraInfo.aspx?id=67512
Menning og listir | Breytt 17.7.2011 kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- Vinsælast; ljóð, húmor og lífstílsbækur
- Sumarlesningin mín
- Vinsælustu bækurnar
- Einstaklega vel heppnað útgáfuhóf
- Netbókabúðin netbokabud.is
- Mensalder á metsölulista
- 50% afsláttur á gömlum bókum
- Kanill í fyrsta sæti hjá Eymundsson
- Kanill verðlaunaður
- Kanill rýkur út!
- Opið alla daga!
- Viðtal við Sigríði Jónsdóttur
- Söluhæstu bækur ársins 2011
- Haustannáll (kvenkyns)bóksalans
- Topp 10! Frá 14. des. - 20. des
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2013
- Ágúst 2013
- Desember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
Bækurnar
- Góða ferð - handbók um útivist
- Hvítir hrafnar verð 28 þúsund
- SELD: Kvæði Eggerts frá 1832 á kr. 43 þúsund
- Austurland I.-VII á 25.000 kr.
- Náttúrufræðingurinn innbundinn á 60 þúsund
- Selt: Frumútgáfa á Svörtum fjöðrum Davíðs fyrir 24 þúsund
- Seld: Eftirmæli 18. aldar á 110 þúsund
- Sending abroad
- Sigurðar saga fóts
- Kvennafræðari Elínar Briem
- [ Fleiri fastar síður ]