Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Hárbeitt háðsádeila frá skopsagnahöfundi

Sigurðar saga fóts eftir Bjarna Harðarson er komin út í kilju. sigf_kilja.jpg

Bókin Sigurðar saga fóts kom út á síðastliðnu hausti og fékk góðar viðtökur gagnrýndenda og lesenda. Í ritdómi DV var henni lýst sem hárbeittri háðsádeilu og á vefritinu Herðubreið var henni líkt við skrif meistara skopsögunnar P.G. Wodehouse. Höfundur sjálfur hefur í samtölum við fjölmiðla lýst því að skopið sé eina alvöruþrungna leiðin til að fjalla um heimskulega atburði.

Sigurðar saga fóts segir hugljúfa ættarsögu sveitafólks austan úr Skrautudal sem á í blóði sínu þjóðlegt sambland drambs og vanmetakenndar. Fyrr en varði er sá kokkteill orðinn að einhverjum þeim klaufaskap að óvart eignast höfuðpersóna bókarinnar, Sigurður Frits Bjarnhéðinsson stóran hluta í öllu athafnalífi þjóðar sinnar. Móðirin Hulda hefur ein einhvern skilning á gangverki þeirrar undarlegu forretningar sem kaupir ný fyrirtæki í hverjum kaffitíma.

- Hann pabbi þinn átti aldrei neitt og ég skil ekki að þú sért orðinn ríkur barnið mitt, segir hún við son sinn. Seinna á þessi seinheppni Breiðholtsvillingur eftir að enda ævina í uppruna sínum með frumstæðum hjartahreinum mönnum sem minna hann á rustalega karlana í smiðju Sigurðar afa suður í Beggjakoti.

Við sögu koma forsætisráðherra sem finnur ekkert bragð lengur af valdinu nema pirringinn, málstola kaupfélagsstjórasynir með töskur fullar af peningum, píreigir og guðhræddir bankastjórar, dularfullar dósir af hundamat austan úr gömlu Sovét og síðast en ekki síst náttúrugreindar konur sem bera heildarmynd sögunnar uppi og vekja frumstæða og villimannslega girnd.

Sigurðar saga fóts fæst í öllum betri bókaverslunum og er leiðbeinandi verð kiljunnar 2190 en innbundin kostar bókin 4690 kr.

 


Vorum að fá dýrgripi ...

audfraedi

tn_upphaf_allsherjarrikis.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

Auðfræði er hagfræðirit eftir Arnljót Ólafsson. Arnljótur fékk 400 króna styrk af landsfé árið 1877 frá Alþingi til þess að semja rit um þau efni, sem nefnd voru ökonomia á erlendum málum. Auðfræðin komu út þremur árum seinna. Arnljótur byggði ritið langmest á kenningum Frédéric Bastiat sem fram komu í Harmonies Economiques. Bastiat hafði tileinkað sér kenningar Adams Smith og er rit Arnljóts, fyrsta íslenska fræðiritið um hagfræði, því skrifað á grundvelli kenninga Adams Smith og í anda hans. Verð 15.000

upphaf_alllsherjarrikis

Upphaf allsherjarríkis á Íslandi og stjórnskipunar þess / eftir Konrad Maurer ; íslenzkað af Sigurði Sigurðarsyni. Útgefin af Hinu íslenska bókmenntafelags í Reykjavik 1882. Verð aðeins 9.900 kr.

 

tn_prjedik_helgi_thord.jpg

Húspostilla : prédikanir til húslestra yfir öll sunnu- og helgidaga-guðspjöll kirkjuársins eptir Helga G. Thordersen. Reykjavík : Kristján Ó. Þorgrímsson, 1883. Með steinprentaðri mynd höfundarins. Verð aðeins 7.900 kr.

Fríkirkjan, mánaðarrit 1. árg. 1899-1900. Verð 8.300 kr.

etik1  etik2  etik3

Etik : en fremstilling af de etiske principer og deres anvendelse paa de vigtigste livsforhold. Kmh 1887. Bókin er merkt séra Ófeigi í Fellsmúla. Verð 6.900 kr.

Skýrslur um landshagi á Íslandi 1858. Verð 7.200 kr.tn_skyrslur_landshagi.jpg

isl_forns

Íslenskar fornsögur. Glúma og Ljósvetningasaga, Kaupmannahöfn 1880. Verð 6.400 kr.

baenakver

Bænakver eftir dr. Pjetur Pjetursson . Útgefandi Egill Jónsson 1873.Verð 4.800 kr.

agrip_af_islandss.jpg Ágrip af Íslandssögu eftir Halldór Briem. Rvík 1913. Verð 5.600 kr.

tn_isl_thjods_oldav.jpg

Íslenzkar þjóðsögur safnað hefur Ólafur Davíðsson. 2 pr. Rvík 1899. Verð 12.900 kr.

 

Íslandssaga Jóns Jónssonar Rv. 1945 Verð 3.200 kr.

 

Skýrsla um forngripasafn Íslands í Reykjavík 1867-1870. Kaupmannahöfn 1874.Verð 3.300 kr.

 

Klausturpósturinn innbundin saman eftirtalin hefti: nr. 10 og 12 frá 1820, 2, 6, 8, 9 og 10 frá 1823, nr. 4, 9, 11 og 12 1824. Verð 99.000 kr.  (9000 kr. heftið)tn_klausturpostur.jpg

Nokkrar tækifærisræður eftir P. Pjetursson. Ræða haldin á Synodus 1849 ; Ræða haldin við byrjun alþingis 1853 ; Þrjár prestvígsluræður, fluttar 1855 og 1856 ; Fermingarræða ; Tvær skriptaræður fluttar 1854 ; Hjónavígsluræður fluttar 1854 ; Líkræður. Verð 24.000 kr.

Sjá nánar og fleiri 19. aldar gripi hér. 

tn_nokkrar_taekifaerisraedur_pp.jpg


Bókateiti í Iðu á morgun

blank_pagegoda_ferdÞær stöllur Elín og Helen kynna á morgun laugardag kl. 14-16 nýja bók sína Góða ferð, handbók um útivist.  Á staðnum verða höfundarnir, trúbadúr sem syngur rútusöngva, flatkökur til næringar, kakó, kaffi og kleinur. Semsagt sannkölluð útilegustemning.

Góða ferð er handbók sem er ómissandi öllum sem ætla að leggja fyrir þvæling um íslenska náttúru, upplögð í pakkann handa fermingarbarninu og ekki síður fín fyrir afa sem er hættur að vinna og ætlar loksins að fara að hreyfa sig...

Það er bókaútgáfan Sæmundur sem gefur bókina út.

Sjá nánar um gripinn í færslu hér neðar á síðunni.


Elín og Helen skrifa bók

Góða ferð_Elín og Helen_mediumÚt er komin handbókin Góða ferð, nauðsynlegur gripur hverjum þeim sem ætlar að leggja fyrir sig fjallgöngur og önnur ferðalög um íslenska náttúru.

Í stað þess að hlaupa strax í útivistarbúð og kaupa þar GPS, áttavita, bakpoka, svefnpoka og plastpoka getur verið skynsamlegt að fara vel yfir hvað það er sem maður raunverulega þarf...

Bókin er í handhægu broti, prentuð á vatnsþolin pappír og heppilegur ferðafélagi.

Höfundarnir hafa áralanga reynslu af björgunarsveitarstörfum en Elín starfaði lengi með björgunarsveitinni hér á Selfossi og auk þess fengist við bæði blaðamennsku og grafíska hönnun. Útgefandi er bókaútgáfan Sæmundur á Selfossi.

Bókina má kaupa hér: https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=70332

Sjá nánar. http://bokakaffid.blog.is/blog/bokakaffid/entry/1147012


Höfundur

Bókakaffið á Selfossi

NETVERSLUN OKKAR, netbokabud.is - yfir tólf þúsund titlar á frábæru verði

Bókakaffið er kaffihús og bókaverslun að Austurvegi 22 á Selfossi. Við verslum með bæði nýjar og gamlar bækur. Hér birtum umsagnir um bækur og fréttir úr kaffihúsinu og netbúðinni. Við erum líka á fésbókinni. Netfang: bokakaffid@bokakaffid.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband