3.6.2009 | 17:08
Er Arnaldur ekki bara að fordæma sjálfan sig?
Er byrjaður á bókinni "Myrká" eftir Arnald Indriðason. Hef aldrei verið mikill aðdáandi hans og þá sérstaklega fyrir ófrumleika sinn nema kannski í fyrstu bókinni sinni, "Synir duftsins" en eftir þá bók hefur hann náð að halda sig niðri með hálf leiðingjörnum löggu-thrillerum þar sem aðalpersónurnar glíma við ótrúleg persónuvandamál sem jaða við að vera bókaútgáfa af CSI. Sem dregur mig að aðalmálinu.
Það er skemmtileg lýsing Arnaldar í sögunni á Hollywood-glæpaþáttum þar sem hún lýsir persónunum í þeim þáttum meðal annars að þær eru nafurskjótar að leysa mál og sífellt að vitna í heimsbókmenntir á meðan þær ná vondu köllunum, sem tekst alltaf. Það mætti einnig bæta við að til að brjóta upp atburðarrásina í þáttunum þá bæta handritahöfundarnir inn persónulegum vandamálum aðalpersónanna.
Í bókum Arnalds er það þannig að það tekur eina bók að leysa málið. Þetta tel ég nú vera nafurskjótt þar sem mörg mál hafa tekið fleiri mánuði, jafnvel ár að leysast. Síðan má einnig sjá það að Erlendur, aðalpersónan í flestum bókum Arnalds hefur sést vitna í svokallaðar heimsbókmenntir Íslands. Í bókum Arnalds næst eða uppgötvast alltaf hver vondi kallinn er. Síðan eru það persónulegu vandamálin. Erlendur, aðalpersóna Arnalds, á í einhverjum mestu vandamálum með fjölskylduna sína þar sem enginn úr henni vill tala við hann. Þá bendi ég á aðalpersónu glæpaþáttanna, CSI: Miami, Horatio Cane. Hann á í mjög svo svipuðum vandamálum við sína fjölskyldu.
Að svo stöddu tel ég að Arnaldur þurfi að fara í endurnýjun á sínum stíl og kannski að endurnýja hugmyndir sínar.
Flokkur: Menning og listir | Breytt 7.6.2009 kl. 21:02 | Facebook
Nýjustu færslur
- Vinsælast; ljóð, húmor og lífstílsbækur
- Sumarlesningin mín
- Vinsælustu bækurnar
- Einstaklega vel heppnað útgáfuhóf
- Netbókabúðin netbokabud.is
- Mensalder á metsölulista
- 50% afsláttur á gömlum bókum
- Kanill í fyrsta sæti hjá Eymundsson
- Kanill verðlaunaður
- Kanill rýkur út!
- Opið alla daga!
- Viðtal við Sigríði Jónsdóttur
- Söluhæstu bækur ársins 2011
- Haustannáll (kvenkyns)bóksalans
- Topp 10! Frá 14. des. - 20. des
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2013
- Ágúst 2013
- Desember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
Bækurnar
- Góða ferð - handbók um útivist
- Hvítir hrafnar verð 28 þúsund
- SELD: Kvæði Eggerts frá 1832 á kr. 43 þúsund
- Austurland I.-VII á 25.000 kr.
- Náttúrufræðingurinn innbundinn á 60 þúsund
- Selt: Frumútgáfa á Svörtum fjöðrum Davíðs fyrir 24 þúsund
- Seld: Eftirmæli 18. aldar á 110 þúsund
- Sending abroad
- Sigurðar saga fóts
- Kvennafræðari Elínar Briem
- [ Fleiri fastar síður ]
Athugasemdir
Þetta getum við hjónin tekið undir, þreytu er farið að gæta í skrifum Arnalds.
Ásdís Sigurðardóttir, 6.6.2009 kl. 13:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.