25.11.2009 | 13:14
Óþægar bækur og andvökur með Styrmi
Hjá bóksala eru bækur misjafnlega þægilegar. Sumar bara koma í sínum 10 eintökum í hilluna og eru þar og þarf ekki meira um þær að hugsa meðan aðrar eru alltaf uppseldar, hversu oft sem er pantað. Og svo þarf að kíkja í bækurnar og til þess eru langar nætur bóksalans.
Sumar eru ósköp þægilegar, maður grautar ofan í þeim hér og þar og fer snemma að sofa. Svo eru til þessar sem valda því að maður mætir geyspandi í bókabúðina næsta dag.
Styrmisbókin Umsátrið er af þeirri sortinni. Einstaklega lipurlega skrifuð og eiginlega spennandi eins og besti reifari. En þar með er ekki svo að ég skrifi undir allt í greiningum gamla Moggaritstjórans. Vonandi gefst mér tími til að kryfja þessa bók almennilega á nýju ári en núna get ég með góðri samvisku bent á hana sem vel gerða og fróðlega bók - þó að hún sé langt því frá að vera hlutlaus.
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.11.2009 kl. 09:59 | Facebook
Nýjustu færslur
- Vinsælast; ljóð, húmor og lífstílsbækur
- Sumarlesningin mín
- Vinsælustu bækurnar
- Einstaklega vel heppnað útgáfuhóf
- Netbókabúðin netbokabud.is
- Mensalder á metsölulista
- 50% afsláttur á gömlum bókum
- Kanill í fyrsta sæti hjá Eymundsson
- Kanill verðlaunaður
- Kanill rýkur út!
- Opið alla daga!
- Viðtal við Sigríði Jónsdóttur
- Söluhæstu bækur ársins 2011
- Haustannáll (kvenkyns)bóksalans
- Topp 10! Frá 14. des. - 20. des
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Desember 2013
- Ágúst 2013
- Desember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Maí 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
Bækurnar
- Góða ferð - handbók um útivist
- Hvítir hrafnar verð 28 þúsund
- SELD: Kvæði Eggerts frá 1832 á kr. 43 þúsund
- Austurland I.-VII á 25.000 kr.
- Náttúrufræðingurinn innbundinn á 60 þúsund
- Selt: Frumútgáfa á Svörtum fjöðrum Davíðs fyrir 24 þúsund
- Seld: Eftirmæli 18. aldar á 110 þúsund
- Sending abroad
- Sigurðar saga fóts
- Kvennafræðari Elínar Briem
- [ Fleiri fastar síður ]
Athugasemdir
Félagi Bjarni !
Hvað er að vera hlutlaus ?
Spurningin er stór !
Erum við hlutlaus, þar eð við förum ekki niður á Alþingi og köstum Molotov-kokteil í það lið sem innan örfárra daga fremja hrein hryðjuverk, já, gerast óhrekjanlega landráðamenn.
Stór orð - en sárlega sönn.
Börnin okkar og barnabörn munu greiða - vegna skulda EINKA-banka - HUNDRUÐ MILLJARÐA á ókomnum árum vegna Icesave.
Hvar er búsáhalda-liðið ?
Hvar er Hörður Torfa ?
Hvar er Gunnar Sig., ?
Vinstri-rauðir selja framtíðarvonir okkar afkomenda fyrir fjóra auma ráðherrastóla !
Grátlegt.
Já, hvað er að vera hlutlaus ?
Niðurlæging þjóðarinnar fullkomnuð, og það sem sárast er, verknaðurinn framkvæmdur af yfirlögðu ráði, eða sem Rómverjar sögðu.: " Animus furandi" - þ.e. " Af yfirlögðu ráði" !
Kalli Sveinss (IP-tala skráð) 25.11.2009 kl. 13:41
Já þetta er bók sem mig langar að lesa. Hann var nú reyndar stundum að reka hornin í bændur karlinn,var nú ekki alltaf hrifin´af honum þá.
Ragnar Gunnlaugsson, 25.11.2009 kl. 16:34
Sæll Bjarni kæra þökk fyrir vináttu.Okkur finnst þú skemmtilegur maður og fróður þess vegna sótums við eftir vináttu.Takk kærlega
Flugurnar (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 00:39
Góð þessi athugasemd með hlutleysið.
Er hlutleysið nokkurn tíma metið af hlutleysi?
Því það sem einn metur hlutlaust er argasti áróður að annars mati.
"Sínum augum lítur hver silfrið"!
Sigurjón Pálsson (IP-tala skráð) 26.11.2009 kl. 10:32
Skuldlausi FinnurMiðvikudagur 25. nóvember 2009 kl 18:37Höfundur: ritstjorn@dv.isFinnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion-Kaupþings, er grjótharður á því að skuldugir starfsmenn bankans óvinsæla eigi ekki að gegna viðkvæmum stöðum. Skilaboð um að starfsfólk í þröngri fjárhagsstöðu verði rekið eða fært til í starfi hafa verið send út. Þetta bætir ekki móralinn í bankanum sem er í ímyndarkreppu. Þá bætir ekki úr skák að Finnur slapp sjálfur undan risastóru kúluláni frá þeim tíma þegar hann stýrði Icebank og er að því er virðist skuldlaus.
Eins og greint var fyrst frá í DV fékk Finnur 850 milljónir í nafni hlutafélags síns. Finnur seldi félagið þegar honum var sagt upp störfum sem bankastjóra Icebank í árslok 2007. Tæplega 16 milljóna króna skuld vegna vaxtakostnaðar var skilin eftir inni í félaginu.Sá stálheppni bankastjóri gengur nú að þeim sem voru ekki eins heppnir. Mórallinn í bankanum er nú að sögn kunnugra að ná nýjum og áður óþekktum lægðum.Hrollvekjandi staða.Miðbæjaríhaldið
Bjarni Kjartansson, 26.11.2009 kl. 11:12
Ekki get ég skilið að meira mark sé takandi á Stymi heldur en bara hverjum sem er. Ég hefl lítinn áhuga á skoðunum Moggaritsjtóra sem fyrst og fremst hafa fundið sig í því hafa völd og vera með tengingu inn í valdastéttina áratugum saman.
Sigurður Þór Guðjónsson, 26.11.2009 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.