Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2011

Brotin egg er skemmtileg og góð lesning

Á sumrin eru krimmarnir vilsælir en það er líka gaman að lesa eitthvað annað. Snemma á þessu sumri las ég bókina Brotin egg eftir Jim Powell. Og ég mæli eindregið með henni.

Í bókinni segir frá byltingarsinnanum Felix Zhukovski sem býr í Frakklandi og hefur hann helgað líf sitt kommúnismanum. Líf hans hefur verið í nokkuð föstum skorðum, en dag einn verður ýmislegt til þess að hann verður að enduskoða afstöðu sína til lífsins. Hann hefur leit að bróður sínum og móður sem hann hefur ekki séð síðan í Póllandi fyrir stríð. Leit þessi verður til þess að að hann sér líf sitt í nýju ljósi, sem og sögu 20. aldarinnar. Saga Felix er einkar hjartnæm, en húmorinn er aldrei langt undan.  Skemmtileg og góð lesning.

-eg


Þá var öldin önnur eftir Einar Braga

th_var_oldin_onnur_einar

Þá var öldin önnur er þriggja binda verk eftir Einar Braga.

Hér er að finna skemmtilegan samtíning þessa austfirska höfundar um atburði og sögur frá liðinni tíð.

Vel með farið eintak (án kápu) á aðeins 3900 krónur.  

https://secure.eshop.is/bokakaffid/VaraInfo.aspx?id=67512


Íslendingasögur Guðna Jónssonar

islendingasogurÍslendingasagnaútgáfa Guðna Jónssonar frá 1953 er 12 binda verk og afar aðgengileg og þægileg útgáfa.

Hér er að finna nokkrar af þeim yngstu Íslendingasögum sem sleppt er í sumum öðrum útgáfum s.s. sögur Ármanns í Ármannsfelli.

 

Eigum eitt eintak af þessu 12 binda safn í góðu ástandi á aðeins 11.900 krónur.

https://secure.eshop.is/bokakaffid/varainfo.aspx?id=70361 


Höfundur

Bókakaffið á Selfossi

NETVERSLUN OKKAR, netbokabud.is - yfir tólf þúsund titlar á frábæru verði

Bókakaffið er kaffihús og bókaverslun að Austurvegi 22 á Selfossi. Við verslum með bæði nýjar og gamlar bækur. Hér birtum umsagnir um bækur og fréttir úr kaffihúsinu og netbúðinni. Við erum líka á fésbókinni. Netfang: bokakaffid@bokakaffid.is

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband